1. Um herferðina
March Forward 2025 er alþjóðleg herferð og hreyfing sem er leidd af UN Women á Íslandi í samstarfi við höfuðstöðvar UN Women og 12 aðrar landsnefndir UN Women. Herferðin leitast við að safna undirskriftum fólks víðs vegar að úr heiminum til að hvetja leiðtoga heims til að hraða innleiðingu Peking-sáttmálans og beita sér af alvöru fyrir því að fullu jafnrétti verði náð um allan heim.
Aðalmarkmið herferðarinnar er að sýna fram á alþjóðlegan stuðning með því að afhenda mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf undirskriftasöfnunina.
2. Vinnsluaðili (Data Controller)
Vinnsluaðili persónuupplýsinga sem safnað er í tengslum við þessa herferð er:
UN Women á Íslandi
Sigtún 42, 105 Reykjavík, Ísland
Netfang: unwomen@unwomen.is
3. Hvaða persónuupplýsingum er safnað
Við söfnum eftirfarandi persónuupplýsingum:
– Fullt nafn
– Netfang
– Búsetuland
4. Tilgangur vinnslu persónuupplýsinga
Persónuupplýsingum er safnað og þær unnar í eftirfarandi tilgangi:
– Til að skrá stuðning þinn við undirskriftasöfnunina March Forward 2025;
– Til að afhenda undirskriftasöfnunina mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna;
– Ef samþykki er veitt: Til að senda þér fréttir og upplýsingar um gang mála;
– Ef samþykki er veitt: Til að deila upplýsingunum með UN Women í því landi sem þú ert búsett/búsettur í.
5. Lagagrundvöllur vinnslunnar
Lagagrundvöllur vinnslu persónuupplýsinga er:
– Art. 6 (1)(a) GDPR – Upplýst og ótvírætt samþykki þitt;
– Samþykki er veitt með því að senda inn upplýsingar.
6. Miðlun upplýsinga til annarra aðila
Persónuupplýsingum þínum kann að verða deilt með eftirfarandi landsnefndum UN Women:
UN Women Ástralíu, UN Women Austurríki, UN Women Finnlandi, UN Women Frakklandi, UN Women Þýskalandi, UN Women Ítalíu, UN Women Japan, UN Women Hollandi, UN Women Nýja Sjálandi, UN Women Spáni, UN Women Svíþjóð og UN Women Bretlandi.
Fyrir þær landsnefndir sem starfa innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) fer miðlun gagna fram samkvæmt Art. 14 GDPR. Upplýsingar um tengiliði er að finna á vefsíðum landsnefnda UN Women.
7. Flutningur gagna til þriðju ríkja
UN Women á Íslandi kann að flytja gögn til landsnefnda í þriðju ríkjum (þ.e. ríkjum utan EES). Flutningur gagna til ríkja sem njóta viðurkenningar Evrópusambandsins samkvæmt ákvörðun um fullnægjandi vernd (Art. 45 GDPR), s.s. Japan, Nýja Sjáland og Bretland, er heimill.
Ef viðkomandi land hefur ekki slíka ákvörðun (s.s. Ástralía), verður flutningur aðeins heimill með sérstökum varúðarráðstöfunum samkvæmt Art. 46 GDPR, einkum með notkun stöðluðu samningsákvæðanna (Standard Contractual Clauses) sem samþykkt hafa verið af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Þessar ráðstafanir tryggja að viðtakendur gagna í viðkomandi landi skuldbindi sig til að vernda persónuupplýsingar í samræmi við kröfur GDPR.
Nánari upplýsingar um SCCs er að finna hér: https://commission.europa.eu/law/law-topic/data-protection/international-dimension-data-protection/standard-contractual-clauses-scc_en
8. Geymsla gagna
Persónuupplýsingar verða geymdar eins lengi og nauðsyn krefur til að uppfylla ofangreind markmið. Almennt verða gögn geymd:
– Fram til afhendingar undirskriftasöfnunarinnar (sem er áætluð fyrir lok árs 2025);
– Og að hámarki 12 mánuðum eftir það í þeim tilgangi að skila skýrslum, halda utan um niðurstöður og bregðast við fyrirspurnum.
9. Réttindi þín samkvæmt GDPR
Samkvæmt GDPR átt þú rétt á:
– Aðgangi að þínum gögnum (Art. 15)
– Leiðréttingu rangra gagna (Art. 16)
– Eyðingu gagna („rétturinn til að gleymast“) (Art. 17)
– Takmörkun vinnslu (Art. 18)
– Afturköllun samþykkis hvenær sem er (Art. 7(3))
– Kvörtun til eftirlitsyfirvalda (t.d. Persónuverndar á Íslandi)
10. Öryggi og geymslustaður gagna
Gögn verða geymd á öruggum netþjónum innan EES. Öllum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum verður beitt til að tryggja aðgangsstýringu og vernd gegn óheimilum aðgangi og gagnamissi.
11. Hafa samband
Ef þú hefur spurningar um meðferð persónuupplýsinga skaltu hafa samband við:
unwomen@unwomen.is